fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Í fjármálaáætlun birtast áherslur stjórnvalda í ríkisfjármálum og stefnumótun á málefnasviðum hins opinbera til næstu fimm ára. Í fjármálaáætlun 2025–2029 er lagt upp með að verja sterka stöðu með hóflegum vexti útgjalda til að stuðla að lækkun verðbólgu og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta á sama tíma og ákveðnum framfaramálum er ýtt úr vör. Undir menningar- og viðskiptaráðuneytið heyra málefni menningar, lista og skapandi greina, íslenskrar tungu, ferðaþjónustu, fjölmiðla, viðskipta og samkeppnis- og neytendamál.
Allir landsmenn eiga að geta aukið lífsgæði sín með þátttöku í öflugu og fjölbreyttu menningarstarfi. Við viljum að Ísland skipi sér í fremstu röð í menningu og listum og stefnt er að því að Ísland verði miðstöð skapandi greina. Helstu áherslur á næstu árum eru að auka verðmætasköpun í skapandi greinum, styrkja innviði í menningu og listum ásamt því að bæta varðveislu, aðgengi, miðlun og skráningu menningararfs þjóðarinnar og á að efla íslensku og íslenskt táknmál sem opinber mál á Íslandi.
Heildarútgjaldarammi til menningar og lista er rúmir 93 milljarðar á tímabilinu. Helstu breytingar til hækkunar felast í 400 millj. kr. varanlegu framlagi til menningarmála á ári hverju þar sem m.a. er horft til stofnunar þjóðaróperu og fjölgunar starfslauna listamanna. Einnig er um að ræða 80 millj. kr. varanlega hækkun á framlagi til Þjóðskjalasafns vegna nýs varðveisluhúsnæðis. Helstu breytingar til lækkunar á tímabilinu felast í almennri aðhaldskröfu og niðurfellingu tímabundinna framlaga.
Virðulegur forseti. Unnið er að löngu tímabærum umbótum á starfs- og rekstrarumhverfi listamanna og annarra sem starfa í skapandi greinum og er frumvarp þess efnis komið til Alþingis. Þá liggur fyrir frumvarp um stofnun þjóðaróperu innan Þjóðleikhússins og er það fyrsta skrefið í átt að auknum samrekstri sviðslistastofnana ríkisins. Þá verður lögð áhersla á eflingu og uppbyggingu á sögustöðum með það að markmiði að standa vörð um sögustaði og þá sögu sem þeir hafa að segja og miðla henni áfram til komandi kynslóða. Unnið er að undirbúningi og uppbyggingu á fæðingarstað Jónasar Hallgrímssonar að Hrauni í Öxnadal. Auk þess er undirbúningur jafnframt hafinn að byggingu menningarhúss í Skagafirði og viðbyggingu við Listasafn Einars Jónssonar ásamt því að unnið er að frekari uppbyggingu í Reykholti þar sem Snorri Sturluson hafði aðsetur.
Þá er unnið að stefnu um rafræna langtímavörslu skjala. Nauðsynlegt er að endurnýja rafræna innviði opinberrar stjórnsýslu til að mæta nýjum kröfum í málaflokknum. Verið er að tryggja Þjóðskjalasafni nýtt varðveislurými en þrátt fyrir það þarf að leysa húsnæðisvanda Þjóðskjalasafns til framtíðar og skoða möguleika á samnýtingu varðveisluhúsnæðis safna í eigu ríkisins.
Virðulegur forseti. Nú mun ég fara stuttlega yfir gildandi stefnur í menningu og skapandi greinum og þær sem eru í farvatninu. Unnið verður áfram að verkefnum og aðgerðum í kvikmyndastefnu, myndlistarstefnu, tónlistarstefnu og stefnu í hönnun og arkitektúr. Þá er unnið að bókmenntastefnu og sviðslistastefnu í ráðuneytinu í góðri samvinnu við hagaðila ásamt því að stefna að stofnun barnamenningarmiðstöðvar. Bókmenntastefnan er þó komin til þingsins.
Endurgreiðslur í kvikmyndagerð voru hækkaðar í 35% fyrir stærri verkefni árið 2022. Í nýlegri úttekt Olsberg um efnahagsleg áhrif endurgreiðslukerfisins kemur fram að hver króna sem varið hefur verið til kvikmyndagerðar í kerfinu hafi skilað sér í tæplega sjöfalt til baka með beinum og óbeinum eða afleiddum hætti. Endurgreiðslurnar falla undir málefnasvið 7 og bætast við tímabundin framlög að fjárhæð 2,5 milljarðar til að mæta fyrirliggjandi vilyrðum um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar.
Þá er aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu 2024–2026 á lokametrunum hér í þinginu. Að vinna að framgangi íslenskunnar og tryggja stöðu hennar í heimi örra tæknibreytinga og fólksflutninga er samvinnuverkefni sem kallar á ótal hendur til góðra verka. Leiðarstef í áætluninni eru að bæta aðgengi og gæði íslenskukennslu fyrir innflytjendur og stuðla að auknum sýni- og heyranleika tungumálsins. Í málstefnu íslensks táknmáls fyrir árin 2024–2027 og aðgerðaáætlun sem nýlega var samþykkt hér á Alþingi er lögð áhersla á meginstoðir sem munu efla, varðveita og stuðla að þróun íslensks táknmáls.
Virðulegi forseti. Ferðaþjónustan er stærsta gjaldeyrisskapandi atvinnugrein landsins með tilheyrandi stuðningi við gengi krónunnar og með styrkari óskuldsettum gjaldeyrisforða. Nú hefur verið lögð fram ferðaþjónustustefna til ársins 2030 og aðgerðaáætlun hennar sem unnin hefur verið í breiðu samráði við haghafa og heimafólk síðustu misseri. Framtíðarsýnin innifelur að íslensk ferðaþjónusta stuðli að bættum lífskjörum og hagsæld, að hún sé þekkt fyrir gæði og einstaka upplifun og sé fest í sessi sem ein af grundvallarstoðum íslensks efnahagslífs.
Heildarútgjaldarammi málefnasviðsins er 11,6 milljarðar á tímabilinu. Gert er ráð fyrir til viðbótar 200 millj. kr. varanlegu framlagi árlega til að innleiða aðgerðaáætlun í ferðamálastefnu.
Virðulegi forseti. Almenningur á að hafa greiðan aðgang að fjölbreyttum, ábyrgum og sjálfstæðum fjölmiðlum sem miðla fréttum, samfélagsumræðu, menningu og efla lýðræðislega umræðu. Með nýrri fjölmiðlastefnu til ársins 2030, sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda í mars, er mótuð framtíðarsýn og skilgreindar lykiláherslur á málefnasviði fjölmiðla með það að markmiði að efla fjölbreytni og fagmennsku á fjölmiðlamarkaði og bregðast við áskorunum samtímans á sviði tækni og stafrænna miðla. Framlög til málefnasviðs fjölmiðla á tímabilinu eru tæpir 40 milljarðar. Helstu áherslur á árunum 2025–2029 felast í stuðningi við einkarekna fjölmiðla og að tryggja aðgang að fjölmiðlaefni á íslensku, gæta þess að sjálfstætt ríkisútvarp njóti trausts og efla stafræna færni, netöryggi og miðlalæsi allra aldurshópa með áherslu á börn og ungmenni.
Virðulegur forseti. Framlög til samkeppnis- og neytendamála nema um 3,8 milljörðum á tímabilinu. Á sviði samkeppnis- og neytendamála er unnið að aukinni skilvirkni á grunni virkrar samkeppni, eflingar neytendaverndar, gagnsæis og heilbrigðra viðskiptahátta. Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til nýrra markaðssetningarlaga. Einnig er unnið að heildarstefnumótun á sviði neytendamála ásamt því að unnið er að úrbótum á samkeppnismálum.
Ég hef nú, virðulegi forseti, stiklað á stóru varðandi áherslur á málefnasviði menningar- og viðskiptaráðuneytisins.