fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Um stefnumótun menningar- og viðskiptaráðuneytisins segir í 18. kafla fjármálaáætlunar um menningu, listir, íþrótta- og æskulýðsmál, með leyfi forseta:
„Framtíðarsýn fyrir málaflokk lista, menningar og íþrótta- og æskulýðsmála er að Ísland skipi sér í fremstu röð á þessum sviðum. Stefnt er að því að Ísland verði miðstöð skapandi greina. […] Meginmarkmið stjórnvalda á sviði menningar og lista eru meðal annars að jafna og bæta tækifæri til ný- og atvinnusköpunar í menningarstarfi, listum og skapandi greinum.“
Ég vil hér í dag beina sjónum mínum að íslenskum kvikmyndaiðnaði og þá sér í lagi þeim hluta iðnaðarins sem felur í sér framleiðslu á íslensku efni á íslensku. Út frá fyrirliggjandi fjármálaáætlun verður ekki annað séð en að við stefnum í talsverðan niðurskurð á framlagi hins opinbera til sjónvarpsverkefna sem nemur um 49%. Samkvæmt Samtökum íslenskra kvikmyndaframleiðenda fara fjárframlög til íslenskrar kvikmyndagerðar í gegnum Kvikmyndasjóð sífellt lækkandi. Er það stefna þessarar ríkisstjórnar að kvikmynda- og sjónvarpsverkefni á þessu landi fari fram á forsendum erlendra aðila sem hafa nýverið fengið talsverða búbót í gegnum nýtt endurgreiðslufyrirkomulag? Ef svo er, hvernig samræmist það gildandi kvikmyndastefnu til 2030 sem nýlega var samþykkt og er þessi þróun til þess fallin að efla íslenskuna og auka aðgengi að íslensku efni sem er svo mikilvægt að Íslendingar og þeir sem læra íslenskt mál hafi aðgang að? Vísa ég hér til 8. markmiðs fyrirliggjandi tillögu um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu, svo að dæmi sé nefnt.