154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[14:46]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á því hvað það gengur vel í íslenskum kvikmyndaiðnaði og hvað það er margt jákvætt að gerast á þessu sviði. Hv. þingmaður beinir sjónum sínum að minnispunktum frá Samtökum íslenskra kvikmyndaframleiðenda og talar um 49% niðurskurð ef ég heyrði rétt hjá hv. þingmanni. Það er alltaf afar brýnt að skoða vel þær tölur sem maður leggur hér fram á Alþingi. Nú er það svo að á Covid-tímum voru sett inn tímabundin framlög til að styðja við skapandi greinar og það var alveg ljóst að við gætum ekki haldið þeim framlögum áfram. Þetta kom fram í þeim fjárlögum sem voru kynnt á sínum tíma og mér heyrist að hv. þingmaður hafi jafnvel ekki kynnt sér það nægilega vel. Það kemur líka fram í fjármálaáætlun, sem virðist einnig hafa farið fram hjá hv. þingmanni, að nú erum við að setja á laggirnar gjaldtöku á erlendar streymisveitur og sú gjaldtaka mun nema 300 millj. kr. sem eiga allar að fara í Kvikmyndasjóð, einmitt til þess að stuðla að því að við náum áfram að styðja við framúrskarandi íslenska kvikmyndaframleiðslu.