154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[14:50]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Nú er það svo að ein mikilvægasta og stærsta áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er lækkun verðbólgu. Eitt af því sem við erum að gera í þessari ríkisfjármálaáætlun er að sjálfsögðu að ná tökum á henni og leita allra leiða til þess. Ég sem menningarmálaráðherra myndi að sjálfsögðu vilja sjá mun meira sett í mína frábæru málaflokka sem ég brenn fyrir á hverjum einasta degi. Það er hins vegar svo að til þess að ná tökum á þeim útgjöldum sem við settum á sínum tíma til að styðja við þessar atvinnugreinar á Covid-tímum þá er það alveg ljóst að við þurfum að draga úr þeim. Er hv. þingmaður hins vegar ekki að boða það að við ættum bara að hafa haldið áfram öllum Covid-útgjöldum af því að það væri svo sniðugt? Ég bið bara um að fólk sem situr hér á Alþingi skoði hlutina í efnahagslegu samhengi.