154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[14:51]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Mig langar að ræða ferðaþjónustuna og þessa fjármálaáætlun við hæstv. ráðherra. Við tölum allt of sjaldan um ferðaþjónustuna og efnahagslegt mikilvægi hennar fyrir landið. Ég verð að segja að ég hef svo sem ekki kynnt mér, það er bara mikið að gera, þá ferðaþjónustustefnu sem hefur núna verið lögð fram til 2030. Ferðaþjónustan skiptir náttúrlega gríðarlegu máli í efnahag þjóðarinnar og eins og kemur fram í þessari fjármálaáætlun þá hefur hún verið núna 32% af gjaldeyrisöfluninni, fór yfir 40% árið 2018 þegar það var sem mest. Hún hefur mikil áhrif á viðskiptajöfnuð þjóðarinnar, gengi krónunnar og efnahagslegt vægi hennar er gríðarlega mikið. Rannsóknir í ferðaþjónustu og þá sérstaklega á efnahagslegum þáttum ferðaþjónustu — mér hefur oft þótt skorta upp á það og þetta mikilvægi hefur hreinlega ekki notið sannmælis. Ég vil leggja það í púkkið að það sé farið með öflugri hætti í rannsóknir sem tengjast efnahagslegum þætti ferðaþjónustunnar og áhrifum á íslenskt efnahagslíf og stöðugan gjaldeyri og annað sem ég hef verið að tala um.

Síðan er það mikilvægi þess að nýta raunverulega þá innviði í landinu sem eru nú þegar til með betri dreifingu, skapa forsendur fyrir að dreifa betur ferðamönnum um allt land. Þannig náum við mestri framleiðniaukningu í innviðunum, með því að nýta þær fjárfestingar sem eru nú þegar til staðar. Þá spyr ég bara, til að kynna mér frá á grunni þessa nýju ferðamálastefnu, hvort þar sé farið í þessa þætti sem snúa að þessum mikilvæga þætti og svo auðvitað um allt Ísland allt árið.