fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Jú, við erum hjartanlega sammála um það og ég er sammála hæstv. ráðherra um að stuðla að betri nýtingu innviða vítt og breitt um landið og jafna straum ferðamanna á árstímana. Það hefur verið ljóður á þeim byggðum sem standa lengst frá höfuðborgarsvæðinu að vetrarnýtingin hefur verið slök en við sjáum það í vetur að flug Easyjet til Akureyrar hefur haft mikil áhrif og Transavia hefur líka flogið og Edelweiss. Það gekk mjög vel með Easyjet-flugið og það vekur miklar væntingar eins og við sjáum, nú er búið að boða bara á síðustu tveim dögum tvær stórar hótelbyggingar í grennd við Akureyri og á Akureyri. Ég held að þessi innviðauppbygging og millilandaflugið séu raunverulega stóri hvatinn að þeim framkvæmdum. Ég hef alltaf lagt gríðarlega áherslu á þetta. Í gamla daga var talað um Ísland allt árið, en við eigum að bæta við þessu „allt“ fyrir framan: Allt Ísland allt árið í ferðaþjónustu. Hagur þjóðarinnar liggur í því.