154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:16]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið. Auknu fjármagni verður ráðstafað til listamannalauna samkvæmt fjármálaáætlun sem ég fagna mjög. Nú er það svo að samkvæmt nýjustu menningarvísum námu rekstrartekjur skapandi greina árið 2021 rúmum 126 milljörðum kr. og árið 2022 störfuðu 15.400 einstaklingar á aldursbilinu 16–74 ára í menningu og skapandi greinum, sem nemur 7,3% af heildarfjölda starfandi á vinnumarkaði.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur farið fram greining á hagrænum áhrifum listamannalauna í ljósi þess hversu miklu listir og menning skila til þjóðarbúsins?