154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:25]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Það er gríðarlega mikilvægt þegar við erum að fjalla um þessi mál að við séum búin að forma ákveðna stefnu þar sem við erum með ákveðin meginmarkmið. Meginmarkmiðið með fjölmiðlastefnunni er að það sé öflugt ríkisútvarp og að það séu öflugir einkareknir fjölmiðlar. Spurt er hvort samstaða sé innan ríkisstjórnarinnar um að fara þessa leið. Ríkisstjórnin hefur afgreitt fjölmiðlastefnu og samningurinn við Ríkisútvarpið hefur verið kynntur fyrir ríkisstjórninni og ég geri fastlega ráð fyrir því að samstaða verði um málið í ríkisstjórninni.