154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:29]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla að leyfa mér að vera ósammála hv. þingmanni þegar hann segir að hér sé allt önnur staða en í Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Það er þannig að það styrkjafyrirkomulag sem við settum upp er algerlega að danskri fyrirmynd. Og það að ríkið sé að skipta sér af fjölmiðlum, eins og hér er ýjað að, er einfaldlega rangt. Það væri mjög óeðlilegt að við værum að skipta okkur af innihaldi eða efnistökum fjölmiðla. Það sem ég hef hins vegar áhyggjur af er það hversu ákafur hv. þingmaður er í því að ýja að því að þetta gangi ekki upp út af mögulegum afskiptum af fjölmiðlum. Það er af og frá og það myndi ekki ganga. Ég ætla ekki að ætla hv. þingmanni að hann sé að ýja að því. Þetta fyrirkomulag er annars staðar á Norðurlöndunum og önnur Norðurlönd telja það afar mikilvægt, til að tryggja lýðræðislega umræðu og þau skoðanaskipti sem eru að eiga sér stað.

Varðandi fjölgun mánaða er varðar starfslaun listamanna þá hafa breytingar á því kerfi ekki átt sér stað síðan 2009, eða í 15 ár. Þetta eru löngu tímabærar breytingar og eitt af því sem við getum verið mjög stolt af eru þessar skapandi greinar og hve listafólkinu okkar vegnar vel.