154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:31]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Það sem ég er að segja er mjög einfalt mál, þ.e. að með því að ríkið sé að styrkja ákveðna fjölmiðla, ákveðna einkarekna fjölmiðla, þá er það ekki að styrkja aðra. Það getur verið erfitt fyrir einstaklinga og hópa einstaklinga sem hafa stofnað fyrirtæki í fjölmiðlun vegna þess að þeir eru í samkeppni við ríkisrekna fjölmiðla, bæði Ríkisútvarpið og aðra. Ég get líka tekið dæmi varðandi óhæðið. Nú er ekkert eftirlit með Ríkisútvarpinu. Að sjálfsögðu verður til ríki í ríkinu inni á þeirri stofnun, alveg eins og í Landsbankanum. Það er alltaf þannig að menn hafa skoðanir á hlutunum og það er ekkert eftirlit frá Alþingi Íslendinga á Ríkisútvarpinu.

Ég get tekið dæmi af Samstöðinni, ég fylgdist með henni um daginn. Þar var fyrrverandi stjórnandi Kastljóss og fullyrti beinlínis að að sjálfsögðu hefðu hennar persónulegu skoðanir áhrif á það hverja hún veldi í þættina og hvernig hún matreiddi efnið ofan í landsmenn. Hún virtist ekki skilja hugtakið um lýðræðislegu kröfuna í 10. gr. laga um Ríkisútvarpið. Hvað er lýðræðisleg umræða? Jú, það er að sem flestar skoðanir komi fram, að talað verði við alla þá sem hafa ákveðnar skoðanir. Það er ekki gert í Ríkisútvarpinu. Það var ekki gert í umræðunni um þriðja orkupakkann. Það var aldrei talað við okkur. (Forseti hringir.) Íslenska þjóðin veit ekki af hverju við erum að lögleiða lög um raforkuviðskipti yfir landamæri. Íslenska þjóðin veit ekki (Forseti hringir.) einu sinni hver helsta gagnrýnin á þriðja orkupakkann var. Það er lýðræðisleg umræða að fá mismunandi skoðanir, ekki sama fólkið aftur og aftur, (Forseti hringir.) sömu skoðanir aftur og aftur, heldur að fá allar skoðanirnar, (Forseti hringir.) a.m.k. þær sem heyrast í flokkunum hér á Alþingi. Það er ekki að gerast á ríkisstofnuninni. (Forseti hringir.)

Það er þessi ríkisvæðing sem er algerlega óþolandi í landinu. Það á að ríkisvæða listirnar, það á að ríkisvæða allt. Við ætlum að fara með klærnar um öll skoðanaskipti, allt sem heitir menning og skoðanafrelsi í landinu.

(Forseti (OH): Forseti biður hv. þingmann um að virða ræðutímann.)