fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Þar sem við vorum að ræða starfslaun listamanna geri ég fastlega ráð fyrir því að hv. þingmanni sé kunnugt um að starfslaun listamanna voru fyrst veitt árið 1890 eða svo. Það var gert vegna þess að þeir sem voru hér á þingi á sínum tíma höfðu bara virkilega trú á íslenskri menningu og vildu styðja við íslenska listamenn. Allt tal um það að hér sé einhver aukin ríkisvæðing í skapandi greinum er einfaldlega rangt. Við eigum frekar að vera stolt af því að styðja við skapandi greinar og horfa á listafólkið okkar sem er að gera frábæra hluti hér innan lands og erlendis. Ég tel að allt tal um að hér sé einhver svakaleg ríkisvæðing í gangi eigi einfaldlega ekki við rök að styðjast.