154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:35]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Fyrir liggur til samþykktar hér á þinginu aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu. Ég ætla ekki að gera lítið úr mörgum þeim metnaðarfullu áformum sem þar er að finna, sérstaklega þeim sem lúta að eflingu íslensku á öllum stigum skólakerfisins og á meðal starfsfólks þess; áform sem við eigum reyndar eftir að sjá útfærð betur undir málefnasviðum, sérstaklega leik- og grunnskóla, sem full ástæða er til að fylgjast með af athygli. Við höfum oft í tíð þessarar ríkisstjórnar orðið vitni að því að fögur fyrirheit komi fram í stefnumörkun en gangi ekki eftir þegar á hólminn er komið.

Spurning mín til hæstv. ráðherra er tvíþætt. Í fyrsta lagi hvernig ætlunin sé að tryggja fjármögnun þeirra verkefna sem fram koma í aðgerðaáætluninni verði hún samþykkt, og beini ég öðru fremur sjónum mínum að skólastiginu. Hér eru hagsmunaaðilarnir mennta- og barnamálaráðuneytið annars vegar og háskólaráðuneytið hins vegar. Í öðru lagi finnst mér líka ástæða til að spyrja sérstaklega um 16. markmið aðgerðaáætlunar um máltækni, lausnir og verkefni sem ætlað er að nýtist almenningi. Af fyrirliggjandi fjármálaáætlun er eiginlega ekki að sjá að 360 millj. kr. árlegt framlag til máltækniáætlunar 2.0 sé örugglega tryggt í reynd; áætlun sem var kynnt með pompi og prakt og mikilli viðhöfn þann 15. mars síðastliðinn. Verður það að veruleika?

Ég vil nota tækifærið og ítreka fyrri spurningu mína til ráðherrans, sem ég bar upp í fyrri ræðu minni, þ.e. hvort hæstv. ráðherra þyki viðeigandi að réttlæta niðurskurð í einstökum greinum með vísan til kynjajafnréttis með þeim hætti sem gert er í greinargerð með fjármálaáætlun.