154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:38]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið, a.m.k. við hluta þeirra spurninga sem ég bar upp. Að því er varðar fjármögnun í skólakerfinu, sem mér finnst ég þurfa að benda á, verður fókusinn auðvitað að vera sá að þetta tengist auðvitað mjög náið máltækni annars vegar og því hvernig við sjáum fyrir okkur framtíðina í íslensku skólakerfi hins vegar. Ég veit að þeim sem sitja á Alþingi er auðvitað öllum umhugað um að íslenskukennsla fari fram með sem bestum hætti en það skiptir máli að útfæra réttar leiðir að settu markmiði.

Mér finnst líka mikilvægt að benda á að það er sérstök áhersla í stefnunni á að hagnýta máltæknina innan mennta- og heilbrigðiskerfisins. Og nú sameinast þetta: Hvernig ætlar hæstv. ráðherra að tryggja að íslenskum skólum og eftir atvikum heilbrigðisstofnunum verði gert kleift að vinna með upplýsingar í þágu slíkra markmiða eftir því sem við á, stuðla að því að það fáist grænt ljós frá íslenskum eftirlitsyfirvöldum svo að tryggt verði að þessi verkefni séu fyllilega lögmæt (Forseti hringir.) og þessir aðilar lendi ekki í eftirliti eftir á líkt og ítrekað hefur gerst með tilheyrandi kostnaði fyrir íslenskar stofnanir?