fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma til þessarar umræðu. Mig langar örsnöggt að ræða málefni Ríkisútvarpsins. Fyrir rúmum mánuði voru sagðar fréttir af starfshópi á vegum ráðherra sem lagði það efnislega til, hafi ég skilið tillögurnar rétt, að einn möguleiki til að bæta stöðu einkarekinna fjölmiðla væri sá að RÚV færi af auglýsingamarkaði og það tekjutap yrði bætt með viðbótarframlögum úr ríkissjóði. En nú bregður svo við að a.m.k. á fundi Ríkisútvarpsins í vikunni, og eflaust hefur það komið víða fram, voru uppi áætlanir hjá Ríkisútvarpinu um að auka tekjur af auglýsingasölu umtalsvert. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvernig þau skilaboð Ríkisútvarpsins slá ráðherrann í ljósi stöðu einkarekinna miðla á markaði og umkvartana þeirra sem ekki hafa farið fram hjá neinum og eru m.a. tilefni þess að við sendum hér árlega einhvers lags afsökunarbeiðni í formi nokkur hundruð milljóna greiðslna til þeirra hverju sinni.