154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:42]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég skil mætavel fyrirspurn hv. þingmanns. Það er búið að setja á laggirnar, eins og hv. þingmaður þekkir, vinnuhóp sem á að móta tillögur um það hvernig við drögum úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Því er alveg ljóst að hljóð og mynd verða að fara saman og ég kem því að sjálfsögðu á framfæri við útvarpsstjóra. Það er auðvitað þannig og er skiljanlegt að þegar við erum í umhverfi þar sem um 50% af öllum tekjum fara til erlendra miðla þá er það bara flókið viðfangsefni. Ég hefði haldið og hélt það upphaflega, eins og ég hef sagt hér ansi oft í þessum ræðustól, að lausnin væri að Ríkisútvarpið færi af auglýsingamarkaði. Það er hins vegar svo að í þeim ríkjum á Norðurlöndunum þar sem ríkismiðillinn er ekki á auglýsingamarkaði, til að mynda í Svíþjóð, eru það held ég um 80% af öllum auglýsingatekjum sem fara til erlendra miðla. Ef það væri lausnin og við værum viss um það þá værum við að sjálfsögðu búin að breyta þessu. Ég held bara að það yrði enn meira magn meðan þetta ástand varir sem færi inn á erlenda miðla. Ef hv. þingmaður er með einhverja frábæra lausn á þessu máli þá má hann alveg deila henni með mér.