154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég er einmitt með lausnina. Við erum nefnilega vanalega með lausnirnar í Miðflokknum. Þessar 53 sekúndur sem ég á eftir gefa mér nú ekki tækifæri til að fara yfir það í smáatriðum en ég mun koma þeirri tillögu til ráðherra hið fyrsta og vona að hún taki hana til skoðunar. Á sama tíma og þessar fréttir bárust af fyrirhugaðri 20% tekjuaukningu Ríkisútvarpsins á næsta ári vegna auglýsingasölu þá blasti það sömuleiðis við að nú væri Ríkisútvarpið að slaga upp í u.þ.b. 9 milljarða, 9.000 millj. kr. í heildartekjur á ári. Þetta eru auðvitað ótrúlegar upphæðir í öllu samhengi sjálfstæðra fjölmiðla á markaðnum. Hefur ráðherrann eða ráðuneytið eftir atvikum sett sér einhverja sýn gagnvart því og komið sér upp afstöðu um hvert umfang Ríkisútvarpsins með réttu gæti verið? Það vita það allir að ef verið væri að stofna útvarp í dag þá yrði Ríkisútvarpið aldrei stofnað í þeirri mynd sem það er nú starfrækt. Umfangið er orðið svo gríðarlegt. (Forseti hringir.) Hefur ráðherra afstöðu til þess hvort ástæða sé til að minnka umfang Ríkisútvarpsins, hvort það sé eðlilegt í þessari stærð eða hvort það ætti mögulega að vaxa eins og sumir halda fram?