154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:47]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegur forseti. Málefni gervigreindar hafa farið mikinn upp á síðkastið og segja má að með hverri kynslóð gervigreindar taki geta hennar ákveðnum stökkbreytingum. Ég hef lengi verið að kalla eftir viðbrögðum með ýmiss konar fyrirspurnum. Nú þegar er myndefni gervigreindar orðið svo sannfærandi að sé fólk ekki látið vita er alls ekki víst að það átti sig á því að efnið sé tilbúið. Á sama tíma getum við ekki bannað gervigreindarefni. Slíkt er hvorki æskilegt né mögulegt. Þá verðum við samt að passa að við töpum ekki sannleikanum.

Ég sá ekki hvort til stæði að fjármagna með einhverjum hætti verkefni tengd gervigreind. Það er alveg ljóst að það þarf að fræða fjölmiðla og almenning um eðli og getu gervigreindar og við verðum að hafa skýrar leikreglur. Takmarkið með slíkum leikreglum á að vera að vernda friðhelgi einkalífs og persónu fólks sem getur verið mjög berskjaldað dytti einhverjum í hug að misnota þá getu sem gervigreind hefur, ekki síst til þess, eins og ég kom inn á áðan, að við töpum ekki sannleikanum. Slíkar ráðstafanir verða ekki til af sjálfu sér. Hagaðilar, almenningur og fjölmiðlar leita að sjálfsögðu til ráðuneytisins til leiðsagnar. Auk þess er mjög mikilvægt að fólk sem telur að einhverju leyti að sér vegið eða á sér brotið vegna notkunar gervigreindar hafi einhver raunhæf úrræði til þess að leita réttar síns. Slíka vinnu verður ráðuneytið að leiða og það þarf að skilgreina lagaramma. Það þarf að vinna reglugerðir og það þarf að vanda til verka og við verðum að vinna þetta hratt og vel því að við þurfum þessar reglur og viðmið helst í gær. Því þarf að flýta þessari vinnu eins og mögulegt er. Það gerist ekki án mannskaps og ekki heldur án fjármagns. Ég vil því hvetja ráðherra til að beita sér fyrir því að slíkt eftirlit verði mannað og fjármagnað og spyrja hvort til greina komi að slíkt verði gert.