fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að fjalla um það mikilvæga mál sem gervigreindin er. Gervigreindin er líklega sú tækniþróun sem er að fara að hafa mest áhrif á okkur, á okkar samfélag, á það hvernig störf eru að þróast. Og nákvæmlega eins og hv. þingmaður nefndi hér hafa sumir spurt hvort við séum komin inn á svokallað post-sannleikstímabil af því að fólk stendur frammi fyrir þeirri áskorun að ekki er búið að sannreyna það sem er fyrir framan það.
Hv. þingmaður nefnir að það eigi að fjárfesta í fræðslu. Þá vil ég upplýsa hv. þingmann um að samkvæmt forsetaúrskurði er gervigreindin hjá háskóla- og nýsköpunarráðherra. Ég er hins vegar með máltæknina en í sameiningu höfum við háskólaráðherra kynnt leiðbeiningar og uppfræðslu um gervigreind og máltækni sem var gefin út á síðasta ári. Mér er það ljúft og skylt að koma því á hv. þingmann. Ég geri mér þó grein fyrir því að hv. þingmaður er að sjálfsögðu að tala um frekara og sterkara lagaumhverfi í kringum gervigreindina og ég er því sammála að við þurfum að fara að feta okkur í þá átt. Hins vegar er líka mjög mikilvægt að við nýtum okkur þau tækifæri sem felast í gervigreindinni vegna þess að við erum að fara inn í veruleika sem er talsvert frábrugðinn því sem við þekkjum í dag og við verðum að kanna og vera fullviss um að við séum að nýta þau tækifæri sem í því felast.