154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[15:51]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og kannski ítreka að ég var fyrst og fremst að horfa til þess hvernig gervigreind kemur við fjölmiðlun. Mig langar líka að koma inn á að í litlu landi eins og Íslandi er mikil hætta á að það skapist fákeppni. Það er því lykilatriði að við vinnum gegn því. Ég sé þess ekki merki í þessari fjármálaáætlun að til standi að styðja betur við Samkeppniseftirlitið sem hefur þó kvartað sáran undan niðurskurði á síðustu árum og að það geti í raun illa sinnt þeim verkefnum sem því er ætlað að gera.

Í ljósi þess að það gerist ítrekað að fyrirtæki verða uppvís að því að hafa með sér ólöglegt samráð sem getur haft skaðleg áhrif á hagsmuni neytenda vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort ekki sé tilefni til sóknar í málum er varða samkeppniseftirlit. Mér er líka hugleikið þessa dagana að almenningur hafi raunhæf úrræði til að leita réttar síns. Til dæmis hvað varðar samkeppnismál þá eru það venjulega sektir sem renna í ríkissjóð. Mig langar að hvetja til að ráðherra beiti sér fyrir því að almenningur hafi úrræði til að fá bót sinna mála.