fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svörin. Já, nýsköpunarsjóðurinn Fléttan, ég þekki hann. Fléttan útdeilir, eftir því sem ég fæ best séð, 100 milljónum á ári. Það er nú samt þannig að við höfum líka haft aðgang að samkeppnissjóðum í Evrópu og á Norðurlöndunum og eru dæmi um styrkþega sem hafa fengið framlög þaðan. HR fékk 15 milljónir evra í styrk 2020 ásamt Nox Medical og Sidekick Health á sviði svefnrannsókna. HÍ ásamt Krabbameinsfélaginu og Perluvinum fengu um hálfan milljarð í alþjóðlega styrki á sviði blóðskimunar. Ég veit auðvitað að vasar ríkissjóðs eru ekki óendanlegir og þetta eru alþjóðlegar tölur; 100 milljónir eru auðvitað eitthvað en það er dropi í hafið. En þetta eru hins vegar ekki góðgerðarsjóðir, við erum að fjárfesta. Við verðum að kalla eftir því að skýr sýn verði mótuð, skýr stefna, líka til þess að auka á aðgengi þessara aðila inn í heilbrigðiskerfið. Stefnumótun verður að koma frá ríkisstjórninni um það hvernig og í hvaða tilgangi eigi að vinna þessar upplýsingar til að hægt verði að nýta féð sem best.