fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og tek bara undir það að við þurfum að nýta þessa tækni og þessi tækifæri sem best. Við erum með regluverk um stafræna væðingu og notkun ópersónugreinanlegra gagna og svo erum við að vinna aðgerðaáætlun um gervigreind, þetta er samstarf tveggja ráðuneyta. Það sem hv. þingmaður nefnir eru auðvitað stórir erlendir styrkir sem eru að koma í rannsóknir, inn í háskólana til að mynda. Með nýrri árangurstengdri fjármögnum erum við að koma með mótframlag við erlenda styrkjasókn sem skiptir máli og hefur ekki verið gert áður. Við erum þá að ýta undir og styðja við háskóla einmitt að sækja fram, sækja í erlenda sjóði til þess m.a. að ná árangri í þessu. Þessir Evrópustyrkir eru einfaldlega mikilvægir og við erum að hækka framlög Íslands í sjóði á vegum Evrópusambandsins í þessari fjármálaáætlun og tryggja aðgang íslenskrar nýsköpunar, rannsókna og fjármögnunar að m.a. Invest in You, eins og ég kynnti fyrir stuttu.