154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:10]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029 og nú þau málefnasvið og málaflokka sem eru á ábyrgð háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ég hef kynnt mér lauslega stefnumótun málefnasviða á verksviði og ábyrgð hæstv. ráðherra og langar að spyrja út í nokkur atriði sem þar koma fram og vekja áhuga minn. Fyrst langar mig að staldra við fjarskiptin en meðal markmiða þar er að allri byggð bjóðist aðgangur að áreiðanlegu háhraðanetsambandi og að á öllum helstu stofnvegum sé áreiðanlegt farnetssamband. Eitt af því sem tilgreint er sem áskorun er að ljúka þurfi við ljósleiðaravæðingu landsins ef áherslur stjórnvalda um Ísland sem gígabitaland eigi að verða að veruleika á næstu árum. Það er enn þá nokkur fjöldi þéttbýlisstaða, minni þéttbýlisstaða og byggðarkjarna, þar sem innan við 80% heimila og fyrirtækja hafa aðgang að viðunandi fjarskiptatengingu, eða 51 byggðarkjarni af 102 um mitt síðasta ár. Því spyr ég: Hvernig er ætlunin að ljúka þessu verkefni að tryggja að þau heimili sem enn hafa ekki fengið ljósleiðaratengingu fái hana sem allra fyrst?

Síðan er það farsímasambandið á vegunum sem mér finnst ganga of hægt fram og stundum raunar eru stigin skref aftur á bak því að þegar eitthvað bilar er eins og það líði margir mánuðir eða jafnvel ár þangað til farið er í viðgerðir. Stundum hefur mér dottið í hug að það þyrfti að vera til ein gátt til að tilkynna gloppur í farsímasambandi á stofnvegunum því að oft veit maður ekki til hvaða fyrirtækis á að snúa sér þegar bilun verður eða farsímasambandið dettur út.