154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:14]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Næst langar mig aðeins að snúa mér að nýsköpunarumhverfinu, en fram kemur að unnið er að endurskoðun stuðningsumhverfis nýsköpunar með skilvirkni og góða þjónustu að leiðarljósi. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvaða umbætur séu fyrirhugaðar varðandi nýsköpunarumhverfið á landsbyggðinni og langar þar m.a. að vísa til svars við fyrirspurn sem ég fékk frá fjármála- og efnahagsráðherra fyrr í vetur um að skattafsláttur vegna rannsókna- og þróunarverkefna skili sér ekki út á landsbyggðina.

Síðan langar mig örlítið að koma inn á háskólastigið og fagna þar markmiðum og mælikvörðum sem eru settir um samstarfsverkefni, raunfærnimat, STEM-greinar og heilbrigðisvísindi. Mig langar svolítið að fá svar við því (Forseti hringir.) hvernig langtímafjármögnun þessara verkefna verður tryggð í nýju fjármögnunarlíkani, sérstaklega samstarfsverkefnanna og raunfærnimatsins.