fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ríkisstjórnin hefur gert ótrúlega mikið fyrir stuðningsumhverfi nýsköpunar á síðustu árum. Ísland er meðal bestu 20 þjóða heims í stuðningsumhverfi og samkeppnishæfni nýsköpunar. Nú þurfum við að skoða hvernig við getum gert þetta enn þá betur, hvernig þetta getur verið skilvirkara, hvernig má auka jöfn tækifæri að þessu o.s.frv. Þar er landsbyggðin hluti af því sem við þurfum að taka tillit til. Við settum á fót Lóu en það má ekki verða til þess að við séum bara með sérsjóði og ekkert sé sótt í stóru sjóðina. Það er það sem er auðvitað alltaf hætta á ef búnar eru til litlar lausnir sér. Þess vegna vorum við þegar ég kynnti sameiningu sjóða að velta fyrir okkur áherslusjóði þar sem væri hægt að sækja enn þá meira fram fyrir landsbyggðina heldur en með Lóu m.a., að það væri þá frekar einhver svona þröskuldur og þú gætir alltaf fengið aukið fjármagn til að sækja í.
Síðan er sérstakur byggðastuðningur í árangurstengdri fjármögnun háskólanna til að styðja við ákveðin verkefni áfram og svo er það auðvitað háskólanna sjálfra að forgangsraða í verkefni þegar þeir eru komnir með jafn skýra fjármögnun og fjármögnunarlíkanið er.