154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:19]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður kom inn á nokkra hluti. Rannís kynnir sérstaklega úrræði nýsköpunarsjóðanna á landsbyggðinni. Við erum með Lóu, sem er sérstakur sjóður fyrir landsbyggðina, en sjóðirnir eru almennt svona „bottom up“ — afsakið slettuna — niður og upp, þ.e. umsóknir eru metnar á grundvelli gæða frekar en að ákveðnu hlutfalli sé beint í ákveðnar áttir, þó að Lóa og ýmsir litlir sjóðir séu undantekningar. Við sjáum að það skiptir miklu máli að kynna sjóðina vel. Við höfum fjárfest í því að það verði nýsköpunargátt þannig að aðgengið sé betra, eins og landsbyggðin hefur kallað eftir og var ein af aðgerðum byggðastefnu, að það sé betra aðgengi að þeim sjóðum sem eru í boði. Það ætlum við líka að gera með einfaldari sjóðagátt og vonumst til að með því náum við meiri árangri, eins og við höfum séð með Lóu. Þar eru að koma gríðarlega öflug verkefni sem ættu auðvitað líka að sækja í stærri sjóði hins opinbera.

Varðandi háskólana og árangur þá hafa þeir verið að falla niður lista og eru neðarlega á þeim en það er rétt að hafa í huga að það eru ekki allir háskólar í heimi á þessum lista og það eru tveir háskólar á Íslandi sem ná yfir höfuð að vera mældir. Við erum með mjög litla háskóla og þess vegna hef ég lagt áherslu á aukna samvinnu þeirra, samstarf og sameiningar til að ná meiri árangri. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að það er ekki bara fjármögnun sem mun skila þeim ofar, það eru gæðin og fókus á það er settur í árangurstengdri fjármögnun til að ná auknum árangri og auka samt samkeppnishæfni háskólanna. Þá stendur yfir endurskoðun á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir. Þar verður ýmislegt skoðað, m.a. jafnari stuðningur, hvert stuðningur fer gagnvart nýsköpuninni og vísindarannsóknum. En árangurstengda fjármögnunin gagnvart háskólunum er auðvitað stóra kerfisbreytingin. Hún snýst ekki bara um aukna fjármuni heldur hvernig fjármunum er varið til háskólanna, til að sækja fram og ná meiri árangri.