154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:23]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Já, þess vegna var ég að reyna að nefna það að fjármögnunarlíkanið snýst ekki bara um útgjöld eða peninga heldur um það að búa til rétta hvata til að ná árangri. Það getur líka snúist um hvort fólk sé fastráðið í doktorsverkefni eða ekki o.s.frv. Það ýtir undir að við horfum ekki bara á það, eins og oft er í kerfinu öllu og öllum málaflokkum, hversu miklir fjármunir fara til kerfisins eða háskólanna heldur að fjármagnið fari í þau verkefni sem ýta undir gæði náms. Alþjóðlegt samstarf skiptir líka máli, samstarf fyrir utan landsteinana. Við stækkum sjóndeildarhringinn eins og hv. þingmaður nefnir m.a. með prófessorum og kennurum að utan sem geta hjálpað okkur að ná meiri árangri og stækka þann sjóndeildarhring sem hér er. Við sjáum nú þegar að með því að hafa kynnt þessa stóru kerfisbreytingu eru háskólarnir sjálfir farnir að breyta því hvernig þeir forgangsraða fjármunum hjá sér og búa til sína hvata til að ná meiri árangri. (Forseti hringir.) Það er ótrúlega jákvætt. Við erum með ýmsar aðgerðir til að efla alþjóðlegt samstarf háskóla og tengingar við háskóla erlendis og kemur það m.a. fram í þessu fjármögnunarlíkani.