154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:24]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að mæta þrátt fyrir að vera vel kvefuð. Mig langar að spyrja fyrst um hluti tengda rannsókna- og þróunarstyrkjum en það er þannig að styrkir vegna endurgreiðslu á rannsóknum og þróun hafa verið lykilstuðningur við nýsköpunarfyrirtæki. Árið 2015 voru þeir um 1,3 milljarðar en á þessu ári er reiknað með að þessi stuðningur verði um 16,6 milljarðar og hækki jafnt og þétt í 24 milljarða árið 2029. Það er ánægjulegt að sjá þessa hækkun en á sama tíma er enn mikilvægara að öflugt eftirlit sé með þessum styrkjum og tryggt sé að þeir fari ekki allir til stærri og stöndugri aðila heldur nýtist frumkvöðlafyrirtækjum. Spurningin er: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra efla eftirlit og tryggja að fjármagn fari þangað sem mest þörf er á?