fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég tek undir að þetta er auðvitað einn öflugasti stuðningurinn og fjárfesting í þessari atvinnugrein ef við ætlum okkur að fjölga stoðum íslensks efnahagslífs. Við höfum séð hvernig þessi stuðningur hefur nýst og hversu mikið fjárfestingar fyrirtækja í rannsóknum og þróun hafa aukist sem og útflutningstekjur að sjálfsögðu, auk þess sem störfum hefur fjölgað þar sem framleiðni er mikil sem skiptir máli fyrir hagvöxt og stóra samhengið í efnahagsmálum landsins.
Við erum að boða hér áframhaldandi stuðning, sem er risaákvörðun. Við erum ekki að útfæra það nákvæmlega í fjármálaáætlun heldur erum við að segja: Við sáum skýrslu OECD þar sem er bent á að við getum gert nokkra hluti betur og talið mikilvægt að hlúa að minni og meðalstórum fyrirtækjum en ekki síður öðrum líka. Þess vegna erum við með stuðninginn tvískiptan, í þrepum. Við ætlum að eiga samtal við Rannís um eftirlitið og hvernig við getum gert þetta einfaldara og skilvirkara sem og gætt að eftirliti með þessu en líka velta upp spurningum um hvort við tökum fyrir það að þessir starfsmenn geti unnið erlendis, að þeir starfi þá einungis á Íslandi til að mynda, og fleiri svona minni háttar atriði sem gætu lagað kerfið og gert það gott varanlega. Við ætlum að auka m.a. samstarf milli Rannís og Skattsins í þessu eftirliti, en þessar stofnanir hafa báðar framkvæmd á sínum höndum í dag, og er það í vinnslu. En það sem skiptir mestu máli er að við höldum áfram að vera samkeppnishæf, að við styðjum og tölum þetta kerfi upp af því að þetta skiptir sannarlega öllu máli þegar við sjáum að fólk með hugmyndir og fyrirtæki hér ákveða að vera í rannsóknum og þróun á Íslandi, fara ekki með fyrirtæki sín af landi brott heldur eru hér í samkeppnishæfu umhverfi og bæta íslenskt efnahagslíf.