fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og er ánægjulegt að heyra að við hæstv. ráðherra erum sammála þegar kemur að þessum málaflokki. Í seinni ræðu minni langar mig að spyrja um netöryggismál en í þeim málum stöndum við sennilega frammi fyrir þeirri vá þar sem við Íslendingar getum orðið hvað verst úti. Þá meina ég vegna þess að við erum jú mjög háð stafrænum lausnum og erum eyja úti í miðju hafi með fáar tengingar til útlanda sem auðvelt er að ráðast á. Þess vegna langar mig að heyra frá hæstv. ráðherra hvaða fjárfestingar í netöryggismálum verið er að leggja til á tímabili þessarar fjármálaáætlunar.