154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:29]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Stjórnvöld unnu aðgerðaáætlun í netöryggismálum, sem er sú fyrsta sinnar tegundar, byggða á stefnu í utanríkismálum og skiptir öllu máli að henni sé fylgt vel eftir og að það sé fjárfest í því að koma aðgerðum áleiðis. Þessi öra þróun kallar auðvitað á að það sé líka skýr samstarfsvettvangur og við höfum komið honum á fót og fjárfest í því. Það er núna kominn samstarfsvettvangur fræðslu, menntunar og rannsókna á sviði netöryggis sem heitir Eyvör ásamt því að unnið er eftir fleiri aðgerðum, eins og minna netöryggisráð sem á að skila meiri árangri og sérhæfðari og síðan svona stærri vettvangur með atvinnulífinu. Svo erum við að innleiða NIS-1 og NIS-2 tilskipunina sem skiptir máli í vörnum okkar sem og að fjárfesta í CERT-IS og getu þeirra til að taka æfingar, taka þátt í alþjóðlegum æfingum sem og að gera hér æfinguna Ísland ótengt, (Forseti hringir.) sem skiptir líka máli, o.fl. Netöryggissveitin CERT-IS er margfalt sterkari nú en fyrir nokkrum árum. (Forseti hringir.) — Við getum auðvitað rætt þetta mikið lengur.