154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:30]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ein af fimm aðgerðum úr aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar sem fram kemur í stjórnarsáttmála er til eflingar skapandi greinum. Í fjármálaáætlun kemur fram að framlög verði aukin til að bæta húsnæðisaðstöðu háskóla og að framkvæmdir við nýtt húsnæði Listaháskóla Íslands í Tollhúsinu hefjist. Á dögunum kom fram að tvöfalt fleiri sóttu um nám í Listaháskóla Íslands í ár en í fyrra. Einnig bárust þær gleðifréttir að skólagjöld yrðu felld niður frá og með haustönn ársins 2024. Því er fagnaðarefni að undirbúningur sé hafinn að flutningi Listaháskóla Íslands í Tollhúsið við Tryggvagötu.

Virðulegi forseti. Eins og ég kom inn á í ræðu fyrr í dag aukast tekjur af skapandi greinum ár frá ári og hagræn áhrif þeirra eru því umtalsverð. Það skiptir sköpum að stjórnvöld standi með og styðji við skapandi greinar hér eftir sem hingað til. Mig langar að spyrja hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hvort stefnt sé að því að fjölga nemum í ljósi hinnar miklu aðsóknar að námi í Listaháskóla Íslands og ótvíræðum hagrænum áhrifum skapandi greina og ef svo er, hvort það breyti á einhvern hátt stefnu í húsnæðismálum skólans.