154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:32]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Auðvitað skiptir sköpum að við tryggjum hér gott aðgengi og jöfn tækifæri að listnámi á háskólastigi. Það að gera ekki upp á milli opinberra og einkarekinna háskóla finnst mér vera sanngirnisleið sem ýtir undir fjölbreytt rekstrarform og valfrelsi þegar kemur að háskólanámi. Á sama tíma erum við með samninga við einkareknu háskólana um nemendafjölda og ákveðið hámark, sem enginn af einkareknu háskólunum hefur farið upp í að nálgast undanfarin ár. Við sjáum að við erum enn þá að mennta of fáa í háskólum miðað við Norðurlöndin. Það er mikil eftirspurn eftir sérfræðingum, bæði í tækni-, raun- og stærðfræðifræðigreinum og verkfræði, STEM-greinum svokölluðum, en líka með A-inu, listum og skapandi greinum, í ýmsu, hvort sem það tengist hugverkaiðnaði eða öðru. Það er svigrúm til þess að fjölga nemendum núna innan núverandi samninga, bæði hjá Bifröst og Listaháskólanum þar sem við höfum séð meira en tvöföldun í umsóknum. Svigrúmið er eitthvað, einhverjum verður eflaust neitað en svo erum við líka að komast í stærra húsnæði. En ég held að þetta sé örugglega einn mesti stuðningur sem við höfum sýnt skapandi greinum og námi í þessum efnum.