fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og brýni hana áfram til allra góðra verka fyrir Listaháskólann. Við hæstv. ráðherra höfum átt góð samtöl hér í þessum sal um stöðu hjúkrunarfræðimenntunar og veit ég að hæstv. ráðherra brennur fyrir því að efla menntun í heilbrigðisvísindum. Lengi hefur aðgengi ungs fólks á landsbyggðinni að háskólanámi verið takmarkað og því er afar ánægjulegt að sjá í fjármálaáætlun að færni- og hermisetur rísi við Háskólann á Akureyri.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvernig færni- og hermisetur í heilbrigðisvísindum muni nýtast til að fjölga nemendum í hjúkrunarfræði í ljósi mikillar manneklu í heilbrigðiskerfinu, ekki síst á landsbyggðinni.