154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:34]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Já, við erum að fjárfesta í færni- og hermisetrum, bæði á landsbyggðinni, við Háskólann á Akureyri, sem og hér á höfuðborgarsvæðinu til að geta fjölgað nemendum. Það hefur verið flöskuháls í verknáminu, sem getur verið skiljanlegt vegna álags á heilbrigðiskerfið en það má ekki hamla því að við getum fjölgað nemendum í þessum greinum. Síðan fleygir tækninni fram og það er mikil nýsköpun í kennsluháttum um allan heim. Við sjáum að færni- og hermisetur eru ekki bara að koma í staðinn eða til móts við verknám heldur eru þau að verða enn þá betri í að þjálfa nemendur upp í mjög hættulegum og erfiðum aðstæðum, að takast á við þær án þess að einhver sjúklingur sé í raunverulegri hættu. Með þessari kennslu, sem er þó kostnaðarsöm, getum við fjölgað nemendum verulega og stigið þau skref sem ég og hæstv. heilbrigðisráðherra höfum sett okkur sem markmið, bæði varðandi læknisfræði og hjúkrunarfræði. En það er ekki síst mikilvægt að fjölga líka í öðrum greinum, eins og sjúkraliðum o.fl., til að styðja við þessa þróun.