fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Mig langar aðeins til þess að eiga samtal við hæstv. ráðherra sem lýtur að samkeppnishæfni háskóla, af því að ég er sannarlega sammála markmiðinu, og langar að taka það út frá því hvað nemendur skipta miklu máli í samkeppnishæfni skóla. Við þekkjum það víða í löndum í kringum okkur þar sem góður árangur hefur náðst í vísindastarfsemi, nýsköpun og þróun atvinnugreina o.s.frv. að það er hörð samkeppni um nemendur alls staðar að úr heiminum. Ég ætla nú kannski ekki að fara að tala um slíka samkeppni en vil tala um þær fréttir sem berast víða að ungt fólk í dag sé bara farið að reikna út hvort það borgi sig að fara í háskólanám. Það gerir það út frá atvinnumöguleikum fyrir háskólanám eða að loknu námi og ekki síður út frá kostnaði, tekjum sem það fer á mis við á meðan það er í námi og kostnaðinum sem það síðan situr uppi með eftir að hafa farið í gegnum háskólanám. Það er eiginlega út frá þeim punkti sem mig langaði kannski að einhverju leyti að halda áfram samtali okkar frá því að ráðherra ræddi hér um Menntasjóðinn fyrr í vikunni. Ég var að reyna að finna út úr þessu þegar ég skoðaði fjármálaáætlunina og er þess vegna glöð með að fá tækifæri hér til að stytta mér leið. Sér þessara hugmynda um breytingar sem ráðherrann er með stað í fjármálaáætluninni, þ.e. eru einhver svör eða breytingar til að mæta ákveðinni gagnrýni, ekki bara frá samtökum stúdenta heldur líka BHM og öðrum, varðandi Menntasjóðinn? Er þetta eitthvað sem er fjármagnað næstu árin eða er beðið eftir nánari útfærslu frá ráðherra og verður það skoðað síðar? Ég hefði sem sagt áhuga á að heyra þetta og ef ráðherra hefur tíma þessar vangaveltur um breytingarnar sem lúta að því að þetta styrkjakerfi komi í staðinn fyrir niðurgreiðslu vaxta. (Forseti hringir.) Það verður bara að segjast eins og er að tímasetningin er að fara illa með nemendur. Þeir eru sannarlega ekki að ríða feitum hesti frá þessum breytingum sem ætlaðar voru til góðs í upphafi. Er þetta eitthvað sem ætlunin er að endurskoða?
(Forseti (JSkúl): Ég minni hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)