154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:43]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þegar allt kemur til alls er hagkerfið okkar byggt á hugmyndum og hugmyndir verða helst til innan nýsköpunar. Eins jákvætt og það er hvernig umhverfi nýsköpunar hefur þróast í rauninni frá Covid þegar stjórnarandstaðan, til að byrja með, lagði fram tillögur um viðbætur sem ríkisstjórnin hlustaði blessunarlega á, þá eru ýmis atriði sem ég klóra mér aðeins í hausnum yfir og mig langar að fá sjónarmið ráðherra gagnvart. Við vinnum hérna á ákveðinn hátt. Við erum með lög um opinber fjármál sem við reynum að vinna eftir til þess að það sé eitthvert ákveðið skipulag á því hvernig við högum ríkisfjármálunum, það skiptir máli efnahagslega og fjárveitingavaldið er nú þegar allt kemur til alls hér á Alþingi. Þannig að þegar ráðherra tilkynnti um niðurfellingu námsgjalda, skólagjalda, þá klóraði ég mér alla vega mikið í hausnum því að ég mundi ekki eftir að hafa séð það, hvorki í fjármálaáætlun né fjárlögum, og vissi þar af leiðandi ekki hvaðan fjárheimildin fyrir því að fella niður skólagjöld í einkareknum háskólum kæmi miðað við fjárlög.

Nú var ég á Rannsóknaþingi í gær og þar kom fram spurning um styrki í Rannsóknasjóð til að passa upp á grunnrannsóknirnar. Svarið var einfaldlega að það væri ekki vitað hvort það ætti að efla grunnrannsóknir, sem mér finnst mjög skrýtið því að hérna erum við að ræða fjármálaáætlun sem er stefna stjórnvalda til næstu fimm ára. Svarið var bara: Við vitum það ekki, hér er bara verið að ákveða ramma og svo kemur nánari útfærslu í fjárlögum. En þetta er rangt miðað við einmitt lög um opinber fjármál þar sem er kostnaðar- og ábatagreining á stefnu stjórnvalda. Ef það er stefna stjórnvalda að auka grunnrannsóknir þá á það að koma fram í fjármálaáætlun. (Forseti hringir.) Ég spyr því: Á að auka fjármögnun í grunnrannsóknir á tíma þessarar fjármálaáætlunar?