fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Varðandi niðurfellingu skólagjalda þá tilkynnti ég ekki um það að ég ætlaði að fella niður skólagjöld heldur að ég ætlaði að bjóða háskólunum að þiggja 100% fjármögnun úr árangurstengdu fjármögnuninni og fjármögnunarlíkani í staðinn fyrir 75%. Sú prósenta hafði verið ógagnsæ. Það hafði aldrei verið tekin nein ákvörðun um hvaða skerðingu einkareknir háskólar eða sjálfstætt starfandi sem eru með skólagjöld myndu setja. Því var talsvert mismunandi hvað sjálfstætt starfandi skólar höfðu fengið um árabil úr opinberum sjóðum. Ég tilkynnti um að val væri um það að þiggja 75% hluta eins og gengur og gerist í lögum um grunnskóla eða að þiggja 100% hluta án þess að taka skólagjöld, sem væri þá ákvörðun skólanna sjálfra. Þessi niðurfelling rúmaðist innan svigrúms ráðuneytisins af safnlið háskólastigsins og kemur ekki niður á öðrum háskólum. Með þessum framlögum og þessum breytingum hafa framlög til háskólanna verið aukin. Í fjármálaáætlun sést stórsókn til háskóla og rannsókna í gegnum fjármögnunarlíkanið þar sem við sjáum að aukning er á öllum sviðum, sérstaklega í rannsóknum þar sem það er í fyrsta skipti gagnsætt hvernig við fjármögnum rannsóknir til háskólanna. Við ætlum að efla Rannsóknasjóð og vonandi náum við því árið 2025. Við erum að skoða sjóðaumhverfið í heild sinni og sú endurskoðun stendur yfir, hvernig þeim fjármunum er skipt og hvernig við getum nýtt fjármuni betur í sjóðaumhverfinu og minnkað m.a. umsýslu og yfirbyggingu sjóðanna, sem er talsvert mikil. Sjóðirnir gegna mikilvægu hlutverki en það þarf að efla bætta fjármögnun háskólanna eins og við erum að gera og þátttöku í rannsóknaáætlunum Evrópusambandsins og þessi mótframlög sem ég hef líka lýst hér í dag.