154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:48]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Rúmast innan svigrúms ráðuneytisins út af einhverjum safnlið; ég veit ekki til þess að Alþingi samþykki einhverjar fjárheimildir með einhverju óráðstöfuðu svigrúmi þegar allt kemur til alls. Er það svo að ráðuneytin séu bara með einhverjar margar milljónir til að ákveða eftir á í hvað þær eigi að nota? Því að það er alveg tvímælalaust stefnumarkandi ákvörðun að segja: Heyrðu, ef þið takið 100% þá fáið þið niðurfellingu á skólagjöldunum. HR fór ekki inn í þetta. Mér skilst að það hafi verið í rauninni forsendan fyrir því að hægt var að taka þessa ákvörðun, að svigrúmið var til staðar. En nú er fordæmið komið og HR gæti gert þetta á næsta ári. Hvaðan á fjármagnið þá að koma? Svo vantar mig bara skýrt að ekki sé bara verið að reyna að auka fjármagn í grunnrannsóknir heldur að það eigi að gera það. (Forseti hringir.) Þannig hljómar stefna stjórnvalda, að það eigi að gera eitthvað.