154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[17:24]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég rakti það mjög vel í mínu fyrra andsvari að það ætti að vera hlutverk stofnunarinnar sem á að þjónusta menntakerfið að aðstoða við það ef menn vildu skala upp eða þjónusta aðila. Hluti af því sem ný þjónustumiðstöð menntunar og skólaþjónustu þarf að byggja upp er verkfærakista, það sem vel gengur á einum stað sem miðla þarf til annars staðar og annarra svæða. Kveikjum neistann er eitt þessara sprotaverkefna sem er að skila jákvæðum árangri og við eigum að aðstoða við að skala upp. Ég veit ekki hvað þingmaðurinn er að óska eftir, er það að ráðherrann sjálfur taki ákvörðun miðstýrt um það (Gripið fram í.) — að ráðherrann eigi að stýra því nákvæmlega? Við viljum hafa ákveðna grósku í skólakerfinu. Ég heimsæki skóla í nánast hverri einustu viku og kynnist ýmsum sprotaverkefnum, umbreytingarverkefnum sem ganga vel á ólíkum sviðum. Þetta er eitt þeirra. Við eigum að fylgja því eftir. (Forseti hringir.) Ný Miðstöð menntunar og skólaþjónustu gegnir þar lykilhlutverki og við þurfum að tryggja henni fjármagn til þess að geta fylgt því eftir.