154. löggjafarþing — 99. fundur,  19. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[17:47]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Hér á síðasta kjörtímabili var samþykkt menntastefna til ársins 2030. Á grundvelli þeirrar menntastefnu var unnin aðgerðaáætlun til fyrstu ára menntastefnunnar sem felur í sér gríðarlega stórar breytingar á menntakerfinu, vegna þess að menntakerfi eru kerfi sem þarfnast þess að margir komi að þegar verið er að vinna breytingar. Þær aðgerðir tengjast m.a. allar lestri. Ég ætla að nefna nokkrar aðgerðir sem ég hef verið að fara yfir.

Eitt hefur verið aukin samhæfing í inngildingu, aukin þjónusta og samhæfing við nemendur með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn. Við gerum ráð fyrir að fjárfesta stórlega í þeim þætti.

Annað eru námsgögnin. Hvernig á að vera hægt að kenna nemendum íslensku ef ekki liggur fyrir nægilegt magn af fullnægjandi námsgögnum til þess? Það er ein af aðgerðum núverandi aðgerðaáætlunar menntastefnu.

Þriðja er heildstæð skólaþjónusta sem allir aðilar urðu sammála um að yrði að vera til staðar þvert á skólastig til að aðstoða skólana við að takast á við þann fjölbreytileika sem aukinn fjöldi nemenda með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn hefur í för með sér. Það er líka aðgerð í aðgerðaáætlun og tengist þessu.

Svona gætum við áfram talið og ég hvet hv. þingmann til að kynna sér aðgerðaáætlun núverandi menntastefnu. Hún er að renna út núna og við höfum náð ótrúlega langt með þær aðgerðir sem við höfum farið í þar, lagabreytingar og frumvörp sem við höfum komið með inn. Næsta aðgerðaáætlun menntastefnunnar, sem ráðgert er að verði byrjað að vinna eftir næsta haust, er núna í mótun og ég hef sagt að hún eigi m.a. að taka til niðurstaðna PISA og byggja ofan á það sem við höfum verið að gera í núverandi aðgerðaáætlun, sem allt eru aðgerðir sem allir eru sammála um að séu mikilvægar fyrir íslenskt skólakerfi. Næsta aðgerðaáætlun er núna í smíðum milli allra hagaðila með það að markmiði hvað við ætlum að gera næstu 2–3 árin að árinu 2030. (Forseti hringir.) Já, það eru aðgerðaáætlanirnar sem eru er í gangi og um þær hefur ríkt samstaða og sátt. Ég hvet hv. þingmann til að finna aðgerðaáætlun menntastefnu og fara yfir hana vegna þess að við erum sannarlega búin að vera að vinna eftir henni.