fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Sjúkrahúsið á Akureyri er eina sjúkrahúsið utan höfuðborgarsvæðisins sem veitir sérhæfða sjúkrahúsþjónustu. Í lögum um heilbrigðisþjónustu segir m.a. að það eigi að veita þjónustu í nær öllum sérgreinum lækninga og vera varasjúkrahús Landspítala. Því fer hins vegar fjarri og það sem verra er þá hefur þjónustan verið að dragast saman á undanförnum misserum. Ýmis sérfræðiþjónusta sem áður var í boði er ekki til staðar lengur. Þar má nefna erfðaráðgjöf, lungnalækningar, augnlækningar, húðlækningar, innkirtlalækningar, myndgreiningardeildarinngrip og lýtalækningar auk þess sem aðrar sérgreinar eru í hættu, geðlækningar, barna- og unglingageðlækningar, skurðlækningar og svo mætti lengi telja áfram.
Árlega þurfa rúmlega 22.000 manns á upptökusvæði Sjúkrahússins á Akureyri að leita sér lækninga til Reykjavíkur þar sem þjónusta er einungis í boði á höfuðborgarsvæðinu, hvort sem er á Landspítala eða hjá sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum með samninga við Sjúkratryggingar. Þjónustusvæðið hefur stækkað gríðarlega. Þá væri einnig hægt að efla þjónustu dag- og göngudeilda Sjúkrahússins á Akureyri. Eflingin fyrir norðan kæmi til móts við samfélagið og minnkaði bruðl hins opinbera og sparaði auk þess sjúklingum himinháar upphæðir vegna uppihalds, gistingar og vinnutaps. Og það er rétt að nefna það líka að oft þurfa sjúklingar að hafa með sér fylgdarmann. Það eru brögð að því að fólk treysti sér ekki einu sinni til læknis vegna þess að það er ekki til staðar.
Í þetta vantar fjármagn, 700 millj. kr. til að mæta uppsöfnuðum halla og 1,3 milljarða til að bæta varanlega inn í rekstrargrunninn. Ég spyr hvað ráðherra ætli að gera í þessari stöðu. Getur hann lofað því að Sjúkrahúsið á Akureyri fái þetta fjármagn og þá hvenær? Eða ætlar hann að horfa áfram á þetta molna niður og að mismunun landsmanna eftir búsetu haldi áfram að aukast?