fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Við skulum endilega ræða sjúkratryggingarnar aðeins hérna á eftir. Hæstv. ráðherra segir að þetta eigi ekki að bitna á þjónustu. En þetta bitnar á þjónustu og ég þuldi upp áðan þær sérgreinar sem hafa látið undan á síðustu árum. Það er gott að hæstv. ráðherra tali um að uppsafnaður halli verði greiddur og ég treysti því þá að þessar 700 milljónir séu í höfn. En eftir stendur að það vantar 1,3 milljarða inn í rekstrargrunninn og 250 milljónir eða hvað það var, það eru ekki nema svona 17% af þeirri upphæð. Ég spyr ráðherra aftur, ef hann getur fylgst með ræðunni í hliðarherberginu, hvort þessum peningum verði komið varanlega inn í rekstrargrunninn. Þar fyrir utan sjáum við náttúrlega bara að koma erlendra ferðamanna, skemmtiferðaskip og annað slíkt, er að þyngja reksturinn verulega og það þarf að bæta aðeins við.
Ég spyr bara, (Forseti hringir.) af því að þetta var einföld spurning: Munum við ekki geta reiknað með því að þessir 1,3 milljarðar komi inn í varanlega rekstrargrunninn?