fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Hæstv. forseti. Við erum að vinna í því að ná utan um þessa stöðu og greina hana. Þessar 250 milljónir varanlega þýðir auðvitað að þær koma á hverju ári inn í reksturinn, inn í þessa 11 milljarða. Við þurfum að greina hver útkomuspáin verður fyrir þetta ár og hvernig það er. Inni í þessu eru líka einskiptisliðir sem þarf að taka utan um. Við höfum mætt stökum verkefnum nánast alfarið með sérstökum fjárveitingum. Ég nefni nýtt sjúkrahúsapótek fyrir norðan, sem er mjög flott og fullkomið, og tengigang sem samnýtir byggingar. Þarna er um að ræða 500 millj. kr. Stöðugildum frá 2019 hefur fjölgað um 90, það eru fleiri sem vinna á Sjúkrahúsinu á Akureyri og þeir hljóta að vera að veita þjónustu. Í því felst aukin fjárveiting. Við erum því svo sannarlega að vinna að því að ná utan um þetta. Við erum með hóp á fjárlagaskrifstofu í ráðuneytinu að vinna með Sjúkrahúsinu á Akureyri til að ná utan um þessa liði og við munum tryggja að sjúkrahúsið verði fjármagnað.