fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Hæstv. forseti. Þetta eru stórar spurningar. Við erum að ræða um bráðamóttökuna og það sem við höfum verið að kljást við þar undanfarin ár, helst á álagstímum, sérstaklega í aðdraganda áramóta þegar pestir ganga helst yfir og svo kemur annar álagstímapunktur í júlí og ágúst þegar ferðamönnum fjölgar og okkar besta fólk þarf hvíld. Við höfum farið í ýmislegt, bæði í samvinnu við spítalann og í þjónustu utan spítala, til þess að greiða fyrir þessu flæði og minnka biðtímann á helstu álagspunktum og eins þegar verið er að forgangsraða og flýta fyrir því sem hv. þingmaður fór hér yfir áðan varðandi persónuvernd.
Hvað varðar ungt fólk á hjúkrunarheimilum er ég með starfshóp ofan á starfshóp — ég veit þetta hljómar ekki vel. En þetta er ekki einsleitur hópur. Þetta er hópur sem ætti raunverulega að vera í öðrum úrræðum. En við í heilbrigðiskerfinu erum í raun að segja, og ekki síst út frá sáttmála Sameinuðu þjóðanna (Forseti hringir.) um réttindi fatlaðs fólks: Heyrðu, við verðum að skjóta skjólshúsi yfir fólk og veita þá bestu þjónustu sem er í boði. Það er það sem við erum að gera en samhliða erum við að vinna í því með sveitarfélögum og öðrum að útvíkka úrræðin.