154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[16:41]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég ítreka þakkir til hv. þm. Steinunnar Þóru Árnadóttur. Já, rétt, virkni og tómstundir eru orð sem jafnframt eru höfð til hliðsjónar samhliða skipulögðu íþróttastarfi. Varðandi ungt fólk á hjúkrunarheimilum er mikilvægt að hafa í huga að þetta er alls ekki einsleitur hópur, þessir 154 aðilar. Rúmlega helmingur þessara íbúa, sem eru yngri en 67 ára, býr á höfuðborgarsvæðinu en stór hluti þeirra býr utan höfuðborgarsvæðisins og þar er oft ekkert annað úrræði í boði þrátt fyrir lögbundnar skyldur sveitarfélaga. Þá hlaupum við undir bagga og reynum að gera það besta í stöðunni. Flestir yngri einstaklingar sem búa á hjúkrunarheimilum, eða tæp 68%, eru á aldursbilinu 60–66 ára. Sumir una hag sínum vel. Við erum að reyna að flokka þetta þannig að við getum farið markvissar í að átta okkur á því hvaða úrræði þurfi að vera í boði til að ná utan um þennan hóp. Við erum með alla hagaðila við (Forseti hringir.) borðið í þessum hópi sem kemur þá með tillögu til ráðherra til að bregðast betur við þessari stöðu.