fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Mig langar að koma svolítið inn á það sem hæstv. ráðherra nefndi í upphafsorðum sínum hér áðan, að markvisst hefði verið forgangsraðað í þágu velferðar og heilbrigðismála. Það er rétt að það er mikil aukning, talsverð aukning, í áætluninni um fjármögnun til heilbrigðiskerfisins. En það kemur jafnframt fram að þar vegur þyngst áframhaldandi hækkun fjárheimilda til heilbrigðisstofnana og sjúkratrygginga vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar. Ef litið er á þetta út frá þeim bæjardyrum þá erum við að tala um að þar sé verið að halda í horfinu. Það er auðvitað jákvætt en engu að síður, í ljósi ákveðinna áskorana sem við stöndum frammi fyrir í heilbrigðiskerfinu, er kannski svolítið djúpt á því að tala um mikla aukningu.
Það er samt ekki það sem mig langar að ræða heldur langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað er það sem vegur, að hans mati, þyngst þegar litið er á kerfið okkar, hversu erfitt það reynist að ná tökum á ákveðnum þáttum, á biðlistum, á samtalsleysi í kerfinu, á því hve ákveðnir hópar sem eiga undir högg að sækja varðandi úrlausn sinna mála sitja lengi eftir? Hvað er það við kerfið sem veldur þessu? Það er óumdeilt að stór hluti af útgjöldum ríkissjóðs fer í þennan málaflokk. Það er verið að leggja vinnu í þetta en það er eins og það séu ósýnilegir veggir sem við rekumst á. Ég fagna því að verið er að gera gangskör í þessari DRG-greiningu. Okkur hefur reynst erfitt að ná utan um kostnað og skilgreina hann og það þarf kannski ekki mikið innsæi til að skilja það. En það er oft erfitt um úrbætur ef menn vita ekki nákvæmlega í hvað peningarnir fara.
Mér þætti gott að fá samtalið um þetta. Hitt er líka tiltölulega óumdeilt að við höldum ekki áfram á þessari braut með aukningu, (Forseti hringir.) horfandi fram á öldrun þjóðarinnar, horfandi fram á þá fjölgun sem við stöndum frammi fyrir, við verðum líka að taka til í þeim hluta sem lýtur að skilvirkni og öðru slíku. (Forseti hringir.) Mig langar líka að benda á það hér að í fyrsta skipti í töluvert langan tíma, a.m.k. svo lengi sem ég man, eru forsvarsmenn heilbrigðisstofnana þegar farnir að kalla eftir stýringu og sýn í kerfinu frekar en fjármunum.