fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson fyrir þessa spurningu, hún er við hæfi í þessari umræðu. Við erum að horfa á breiðu línurnar. Það er rétt, sem hv. þingmaður kemur inn á, að þetta er um þriðjungur af rammasettum fjárlögum. Ég hef stundum sett þetta í það samhengi, hvort við séum velferðarþjóðfélag, að ef við horfum á rammasett fjárlög — þá undanskiljum við lífeyrisskuldbindingar og atvinnuleysisbætur og því um líkt, af því að stærstur hluti af heilbrigðisútgjöldum er inni í ramma — tökum síðan félagsmálaráðuneytið og þá málaflokka sem eru stórir og miklir þar, þá erum við með 6 kr. af hverjum tíu sem við greiðum í skatt. Við getum þá spurt okkur að því hvernig okkur tekst að nýta 4 kr. í samgöngumál, í menntamál og allt hitt, í löggæslu, dómstóla, og svarað því aftur: Erum við velferðarkerfi eða ekki? Erum við að forgangsraða í þágu velferðar?
Það er hárrétt, sem hv. þingmaður segir, við þurfum að ná stýringu. Við þurfum að hafa framtíðarsýn og við þurfum að horfa á — af því að hv. þingmaður sagði að við yrðum að halda í horfinu. Jú, þetta er sjálfkrafa vöxtur þegar kemur að launum og verðlagi. Umfram það hefur okkur þó tekist að vera með umfram reiknaðan raunvöxt á milli 3 og 4%. Við erum þá með svigrúm til aukinna verkefna sem fer þá í að reyna að ná einhvers konar stýringu. En ef við horfum á skattandlag úr þjóðhagsjöfnunni, ef við horfum bara á þjóðhagsjöfnuna, þjóðarframleiðsluna, þá erum við með fimmtunginn af verðmætasköpuninni, sem rennur í ríkissjóð í gegnum tekjurnar. Og þetta er nokkuð fyrirséð. Í því sveiflukennda hagvaxtarumhverfi sem við höfum búið við verða tekjurnar yfirleitt aðeins hærri en þá taka þessir málaflokkar sífellt meira til sín og munu óhjákvæmilega gera það. (Forseti hringir.) Við erum að eldast og okkur fjölgar þannig að það er augljóst að við þurfum að ná mjög markvissri stýringu út frá þeim breytum (Forseti hringir.) sem við erum að ræða hér. Þetta er frábær spurning, hv. þingmaður.