fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.
Forseti. Ég þakka ráðherra fyrir svörin. Ég held að það sé nefnilega það, og við erum sammála þar, að umræða um þennan hluta kerfisins þarf að fá meira pláss en hún gerir. Við verðum einhvern veginn að fara að gera það. Ég held að það gagnist öllum, líka þeim sem bera skarðan hlut frá borði eins og kerfið er í dag. Það er ekki þannig að við séum þá að beina athyglinni frá þeim heldur nákvæmlega að reyna að ná tökum á þessari áskorun til lengri tíma litið.
Mig langar aðeins í seinni umferð að beina athyglinni að því sem kemur fram í textanum í áætluninni um að ráðstafanir í heilbrigðismálum séu taldar stuðla að jafnrétti. Konur nota heilbrigðisþjónustuna meira. Það eru konur sem eru líklegri til að sinna aðhlynningu og maka. Það er ekki það fólk sem mig langar að ræða heldur sú staðreynd að konur eru í miklum meiri hluta heilbrigðisstarfsfólks og okkur vantar heilbrigðisstarfsfólk og hér búa tilteknar kvennastéttir við verri starfskjör en aðrar stéttir. Í því tilliti minni ég á tillögu okkar í Viðreisn um að hér yrði gert þjóðarátak í því að jafna kjör kvennastétta. (Forseti hringir.) Ég held að það sé óumdeilanlegt að það að fara í það verkefni myndi vega þungt (Forseti hringir.) í því að reyna að tryggja betur mönnun heilbrigðisstétta. Mig langar til að spyrja (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra: Er eitthvað að finna í þessari áætlun (Forseti hringir.) umfram þessi fallegu orð um það að sú sé vegferð stjórnvalda?
(Forseti (AIJ): Forseti minnir á afar takmarkaðan ræðutíma.)