154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[17:01]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég fór yfir það í fyrra andsvari að við værum hér að vinna með spítalanum í að ná utan um fjármögnunina og fjármögnun sérgreina. Ég deili því með hv. þingmanni að það er æskilegt að við höfum í þessum helstu sérgreinum sérfræðilækna á staðnum og þegar upp á hefur vantað þá hefur tekist að manna það með aðkomu Landspítala til að mynda. En það þarf að vera og ætti að vera eftirsóknarvert að starfa við Sjúkrahúsið á Akureyri. Þetta er öflugt sjúkrahús og okkur er mikið í mun að það sé öflugt og sinni hlutverki sínu og ég mun verja það allt með ráðum og dáð. 1,3 milljarðar eru ekki þær tölur sem ég hef akkúrat í þessum síðustu upplýsingum sem ég hef, það er aukaatriði þó. Ég vil hins vegar draga fram að við höfum mætt öllum verkefnum sem til viðbótar koma með viðbótarfjárveitingum þannig að það er fullur hugur á bak við það að fjármagna sérgreinaþjónustu á Akureyri. Ég ætla ekki að fara í orðaskak hér við hv. þingmann um tölurnar sem slíkar, við þurfum auðvitað að ná utan um það, en ég vil ítreka það sem ég hef komið að hér um að starfsfólki mælt í stöðugildum hefur fjölgað á sjúkrahúsinu þannig að þjónustan ætti þá að vera styrkjast. En við verðum auðvitað að huga að þessum sérgreinum sem eru svo mikilvægar. Þær tölur sem hafa verið uppi um það hversu margir þurfa að leita suður til sérfræðinga stemma heldur ekki. Það voru samtals 12.377, í einhverjum tilvikum er það því miður nauðsynlegt en við róum að því öllum árum að styrkja kennslusjúkrahúsið, Sjúkrahúsið á Akureyri. Við erum alveg á sama stað í því, ég og hv. þingmaður.