154. löggjafarþing — 100. fundur,  22. apr. 2024.

fjármálaáætlun fyrir árin 2025--2029.

1035. mál
[17:03]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Það er alveg sama hversu oft hæstv. ráðherra talar um að hann muni gera þetta og ætli að gera þetta, það verður að sýna það í verki. Þegar blóðskilun var komið á á Sjúkrahúsinu á Akureyri var gert samkomulag við Sjúkratryggingar um að þeir tækju að sér hluta kostnaðarins, enda sparaði blóðskilun á Akureyri mikla peninga. Áður hafði göngudeildarstarfsemi og dagþjónusta verið greidd á föstum fjárlögum sjúkrastofnana en nú virðast Sjúkratryggingar ekki telja það í sínum verkahring að greiða fyrir þessa þjónustu og benda á heilbrigðisráðuneytið. Á sama tíma bendir ráðuneytið á Sjúkratryggingar og þess vegna getum við sagt að þróun dag- og göngudeildar á Akureyri sé komin í gíslingu þessara tveggja aðila. Fyrir nokkrum misserum sagði ráðherra að málið yrði leyst fyrir hádegi. Þetta er orðið býsna langt hádegi, hæstv. ráðherra. Hvenær lýkur því?